Til stóreignamanna
Máttarstólpar, miklir menn,
mættu hug sinn skoða.
Minni máttar mæðast senn,
mjög þeir fótum troða.
Í persónunnar prjál og pjátur,
peningunum pungar eyða.
Sáttir sitja sínar sátur
og sælir sínar súpur seyða.