Milli Þilja
Milli þilja leynast minningar
sem gleymdust í algleymingi nútíðarinnar

Milli þilja leynast bergmál radda
sem dofnuðu í síbylju sjálfhverfunnar

Það var milli þilja sem ég gleymdi
minningunum sem þú baðst mig að geyma

Það var milli þilja sem ég glataði þínum dýrmætustu eignum  
Íris Sif Kristjánsdóttir
1980 - ...


Ljóð eftir Írisi Sif Kristjánsdóttir

Andstæður
Milli Þilja
Prozac
Húm
Hinsta hvíla
Orrusta