Myrkurskin
tunglið rís hærra á himinhvolfinu
horfir yfir myrkvaða veröldina sofa
grár bjarminn fleytist á vatnsfletinum
er það ferðast um skýin
felur sig bak við skýin
og njósnar um mig...
augað alsjáandi - dómarinn eilífi
flakkar hér um til að sjá inn í mig
hlustandi á hugsanir - vitandi langanir
og veit allt um það sem að dvelur í mér...
ég leita skjóls - en ljósið nær til mín
syndir mínar opinberast senn
ekkert flýr - þegar sterkt máninn skín
um himinninn flýgur hann enn...
menn eru blindir
sjá ei mínar syndir
og svik gagnvart hverjum vini
trúleysi máttleysi ódyggð
baktal stríðni og fryggð
í feluleik undir mánaskini
tunglið rís hærra á himinhvolfinu
syndir mínar opinberast senn
ég verð að hverfa í flýti
til að fela sálarlýti
því syndir mínar drýgi ég enn...
...
í felum þar sem tunglið nær aldrei að sveima
og ég gref mig ofan í botnleðjuna
þar sem ég á heima...
horfir yfir myrkvaða veröldina sofa
grár bjarminn fleytist á vatnsfletinum
er það ferðast um skýin
felur sig bak við skýin
og njósnar um mig...
augað alsjáandi - dómarinn eilífi
flakkar hér um til að sjá inn í mig
hlustandi á hugsanir - vitandi langanir
og veit allt um það sem að dvelur í mér...
ég leita skjóls - en ljósið nær til mín
syndir mínar opinberast senn
ekkert flýr - þegar sterkt máninn skín
um himinninn flýgur hann enn...
menn eru blindir
sjá ei mínar syndir
og svik gagnvart hverjum vini
trúleysi máttleysi ódyggð
baktal stríðni og fryggð
í feluleik undir mánaskini
tunglið rís hærra á himinhvolfinu
syndir mínar opinberast senn
ég verð að hverfa í flýti
til að fela sálarlýti
því syndir mínar drýgi ég enn...
...
í felum þar sem tunglið nær aldrei að sveima
og ég gref mig ofan í botnleðjuna
þar sem ég á heima...