Sannir persónuleikar
með gullið hár og augu sem stara svo djúpt - brúnt hörund
silkisléttar rauðar varir sem glotta hæðnislega að hinum
gengur hann beinn í baki - stoltur af tilveru sinni hér á jörðu
ástfanginn af sjálfum sér - þessi \"myndarlegi\" - þessi \"sæti\"
myndi riðlast á sjálfum sér og speglinum
ef hann gæti...
ég er þreyttur á hræsni og hroka þessa heims sem við búum
ég er þreyttur á tilveruleysi þess drottins sem við trúum
blind við göngum þann veg sem fyrir okkur er lagt
gerum það í sannri hlýðni - allt sem okkur er sagt...
leggjum á okkur erfiðisþrautir og eyðum miklu fé
til að hindra það sem annars myndi kannski ske
verða ekki útskúfuð sem fólk - litin hornaugum
við drögumst inn í hópinn - með tilveruleysisdraugum...
...
til fjandans með meik og til fjandans með gel
ljótum og asnalegum líður mér helvíti vel
til fjandans með brúnku og til fjandans með þig
ég þarf ekki að þykjast er ég hef fundið mig
til fjandans með hössl og til fjandans með vín
drykkfellda gervistelpan mun aldrei verða mín
til fjandans með trú og til fjandans með pólitík
til fjandans alla og hverja einustu silkiflík
til fjandans með hroka hræsni flón og klón
meikaðar gervipersónur - chockoa - gerviblóm
til fjandans með gleði ef ég er slappur og leiður
til fjandans með allt ef ég er æstur og reiður
til fjandans með sorg og til fjandans með lyf
ég vil ekki upplifa fjandans gervialsælusvif
til fjandans með ljóð og til fjandans með blíðu
til fjandans með blóð og aðra fylgikvilla stríðu
svo heyrðu minn óð og fylgdu mér eftir
svo ekki verða aðrir asnar frelsisheftir!!!
...
ég er ég sjálfur og ég mun verða það æ
sama hvað ég lifi - og sama hvað ég fæ
ég mun geta litið aftur og við mig sagt
þessa lífsins braut - hefurðu sjálfur lagt
því þó ég gangi í slitnum fötum
og skórnir allir alsettir götum
ég sé ekki dáður í veislum öllum
dýrkaður af frægum gerviköllum
þá mun ég lifa það sem ég vil
upplifa sjálfur og vera til...
ég er ekki gervimaður - dökkklæddur lúði
ég er ekki inni - né draumaprinsinn prúði
ég er ekki úr plasti - ekkert sálnameik
fjandinn hafi það...
ég er ekki feik!!!

Þungarokksljóð ;þ