Antikristur II
Rotið eplið fellur sjaldan langt frá fötunni
fíflar eins og ég vaxa villt í sléttu götunni
sem lirfur verða fagrar og illgresið að blómi
í taktleysi fell ég ei að samfélagsins hljómi...
Sem illa lyktandi sápa er áður dvaldi í laugum
ligg ég núna ofnotaður á tilverunnar haugum
uppsoginn brjóstsykur og ónýttur úrgangur
viðbrenndur kalkúnn og burtskorinn \"botnlangur\"
\"Ég er andskotans fituklessa í hjartans miðjutaugum!!!\"
Tómur að innan og tilfinningalaus fjandi
tjara fyrir heila og hjarta úr sandi
ónýtur þegn og vítt þekktur fyrir leti
þekkjast mín brögð í mínu svikamylluneti...
Það er helvíti skítt ef sáðlát hefur það skárra
og skýjableik hamingjan er í höndum svo fárra
því þó ég sé hvorki fæddur né dauður
og fátækur í lífi - minn þekkingarauður
þá hrökklast ég undan augum svo grárra...
Og ástlaus eind í rósarinnar þyrni
í frumum mér hatandi meinlætiskirni
á hugum ykkar er ég nagandi naðra
nú hlustið þið ei ef ég tek að blaðra
og þó ég hafi ekki fæðst í þennan heiminn enn
þá skuluð þið hlusta - þið værukæru menn:
\"Ég er drottnari í vítum öllum títtnefndum
og öskrandi af þrá - mitt hjarta nær hefndum
við áróðri mínum þið haus hafið hrist
en brátt munið þið sjá: nýjan Antikrist!!!\"

Þetta ljóð er eiginlega samið sem háð að öllum þeim sem boða komu Antikrists. Mér finnst boðskapur þeirra rangur (ég er á móti Djöflatrú þó ég fordæmi hana ekki) og mig langaði til að gera grín að Djöflinum. (upphaflega birt á huga.is/ljod - 30. desember 2001)