Villtur í efasemdum, týndur í djúpum hugsunum, fundinn af sársauka
Sama hversu lengi við fáum lifað
Það er eitt sem ég hef uppgötvað...
Við Þurfum ekki að vera auðug
Við þurfum ekki að vera fræg
Þetta er allt í kringum okkur...
Hvað er það sem heldur okkur sem eitt
hvað er það sem er alltaf hjá okkur en segir aldrei neitt?
Við vitum að það er þar, en getum ekki gripið þegar tækifæri gefst
Fljótlega er það hamingja eða hatur sem í okkur hefst
En það sem er mér alltaf í huga efst
Mun ég kynnast því sem allir sjá
Eignast það sem allir þrá
Eitthvað sem allir vilja fá
Eða lifi ég villtur?
Ég var einn, ég er það enn
Ég tek aðeins eitt skref í senn
Ótti tók sér festu í mér
Ótti við að verða ástfanginn af þér
En ég var heimskur, ég barðist og vann
Ég særði þig, og er það eina sem ég kann...
Það er eitt sem ég hef uppgötvað...
Við Þurfum ekki að vera auðug
Við þurfum ekki að vera fræg
Þetta er allt í kringum okkur...
Hvað er það sem heldur okkur sem eitt
hvað er það sem er alltaf hjá okkur en segir aldrei neitt?
Við vitum að það er þar, en getum ekki gripið þegar tækifæri gefst
Fljótlega er það hamingja eða hatur sem í okkur hefst
En það sem er mér alltaf í huga efst
Mun ég kynnast því sem allir sjá
Eignast það sem allir þrá
Eitthvað sem allir vilja fá
Eða lifi ég villtur?
Ég var einn, ég er það enn
Ég tek aðeins eitt skref í senn
Ótti tók sér festu í mér
Ótti við að verða ástfanginn af þér
En ég var heimskur, ég barðist og vann
Ég særði þig, og er það eina sem ég kann...