4 saman
Hjartað litla að bugast mér

Verð að finna þig og segja þér

Mitt litla ljóta leyndarmál

Sem er að éta mína sál.




Sameiginleg ákvörðun þetta var

Spurningin var bara hvar

Þó þetta ætti bara að vera gaman

Hefðum við aldrei átt að gera þetta saman.




Þið gantist, hlæjið og grínist

Alveg nákvæmlega eins og ykkur sýnist

Mér einni þykir þetta leiðinlegt

Fyrir ykkur var þetta einskisvert.




Vildi að ég gæti spólað aftur

En virðist sem þrotinn sé minn kraftur

Verð víst bara að lifa með þessu

Og reyna að vinna mig útúr þessari klessu!




Þið mikilvæg hafið verið mér

En þetta ævintýri endar víst hér

Kveð ykkur nú að sinni

Verið sæl elsku X
 
Halla
1985 - ...
varð að tjá mig um vissan hlut en engin nöfn birtast svo þetta ætti ekki að skaða neinn.


Ljóð eftir Höllu

Skilaðu mér!
Týnt
4 saman