Talað við spegilmynd
þú stendur þarna uppgjafa og blótar sjálfum þér
þú grætur þarna þunglyndur og kennir öðrum um
þú eykur baugun tárblautur og þerrar ekkert upp
þú klúðrar öllu kærulaus og bætir aldrei neitt...
þú ert fjandans fífl og tregasjúkur
finndu leiðir út úr þínum vanda
þú ert aumingi og alltof mjúkur
aldrei nærðu aftur þínum anda...
eitt hef ég að segja við þig auli
eina fíflið á svæðinu ert þú
rífðu þig nú aftur upp drengstauli
tjáðu þessum ljóta heimi “fuck you!”
...
vertu ekki gólfmotta að láta þraðk’á þér
vertu ekki aumingi og minnstur allra hér
vertu ekki sjálfumaumur þráhyggjuskítur
láttu ekki sjálfsvorkunn og fortíð gleypa þig
vertu sterkur, vertu sóber – hlustaðu á mig!
“því enginn er betri en þú hvert sem þú lítur...”
...
vertu ekki sjálfumaumur þráhyggjuskítur
því enginn er betri en þú hvert sem þú lítur...