Talsmaður Móður Náttúru
niður fljótin geysist grimmdin dökka
greipir för í andlit landsins hreina
undir vatni dýrin saklaus sökkva
til að sefja græðgishugsun eina...
undir himni hef ég oftast róast
horfi stíft á landið sem við eigum
eins og málin hafa núna þróast
allslaus við í framtíðinni deyjum...
peningar sem flesta huga fanga
fara mættu brott úr þessu landi
verkin fáráð falla þungt á vanga
Frón er ekki búið til úr sandi!
...
haldið þið að þetta muni bjargast
þegar loksins féð í hendur kemur?
sjáið þið hvað hefur þegar fargast?
fegurðin sem skóflan kalda lemur...
engin leið til baka
og loks þið munuð öll
fyrir augum hennar
svara satt til saka
morðingjar!
greipir för í andlit landsins hreina
undir vatni dýrin saklaus sökkva
til að sefja græðgishugsun eina...
undir himni hef ég oftast róast
horfi stíft á landið sem við eigum
eins og málin hafa núna þróast
allslaus við í framtíðinni deyjum...
peningar sem flesta huga fanga
fara mættu brott úr þessu landi
verkin fáráð falla þungt á vanga
Frón er ekki búið til úr sandi!
...
haldið þið að þetta muni bjargast
þegar loksins féð í hendur kemur?
sjáið þið hvað hefur þegar fargast?
fegurðin sem skóflan kalda lemur...
engin leið til baka
og loks þið munuð öll
fyrir augum hennar
svara satt til saka
morðingjar!