![](/static/core/img/cube.png)
![](/static/core/img/cube.png)
Bárunnar blúndukögur
skrýðir dimmbláa
klettaströnd
þar sem svarthvítir fuglar
sveima
við hljómþýðan söngleik
vindanna.
Í þverhníptu bergi óma
ótal vonglaðar raddir
vorsins sígrænu drauma.
Hugur minn horfir og saknar
er ung ég undi og unni.
í faðmi þér
fagra eldborna eyja
skrýðir dimmbláa
klettaströnd
þar sem svarthvítir fuglar
sveima
við hljómþýðan söngleik
vindanna.
Í þverhníptu bergi óma
ótal vonglaðar raddir
vorsins sígrænu drauma.
Hugur minn horfir og saknar
er ung ég undi og unni.
í faðmi þér
fagra eldborna eyja