Hvað er lífið ?
Lífið er ganga hvers lifandi manns,
sem að á jörðinni er staddur.
Sumir byrja snemma, sumir ekki.
Sumir eru latir, sumir ekki.
Hver og einn fer sinn vanagang,
eftir sínu höfði.
Sumir hlaupa en aðrir ganga.
Ég sest oft niður og fylgist með.  
Kristófer Örn
1982 - ...


Ljóð eftir Kristófer Örn

Englarnir
Hvað er ást ?
Hvað er lífið ?