Dæmi
Mér finnst gaman að taka dæmi:

um þig,
og mig,
það er dæmi gert fyrir okkur,

um ást,
og sorg,
það er dæmi gert fyrir lífið,

um hlýju,
og kulda,
það er dæmi gert fyrir unað,

um í gær,
og á morgun,
það er dæmi gert fyrir núna,

um hitt,
og þetta,
það er dæmi gert fyrir allt,

Tökum dæmi:
til dæmis,
er þetta ljóð
dæmi gert fyrir dæmi,
um hvað við erum dæmigerð.


Rvk. 2002
 
Hjördís Kvaran Einarsdóttir
1970 - ...
Birtist í ljóðabókinni Svört orð 2002

Allur réttur ákilinn höfundi


Ljóð eftir Hjördísi Kvaran Einarsdóttur

Eftirmæli
Ef
Stundum
Næturdraumar
Takturinn og tíkin
Lyfseðill
Uppgötvun
Tómas Guðmundsson
Minning
Sorg
Aska
Barn
Gólftuskan
Sálin
Sortan
Ljótt
Rugl
Dæmi
Upplifun
Með þér
Sköpun
Þögn
Auðn og ekkert
Skot á barnum
Vegurinn
Rottufangarinn
Ástin
Vinur
Hún
Þú
Eftirmæli um Þorstein Gylfason
Í kvöld
Að þér gengnum
Einsemd
Ópið
Þrá
Ný kynni
Regn
Áttu tappa?
einhver eins og þú
Hvað?
Upphaf að einhverju nýju
Draumur
Svar til Gísla Einarssonar á kosninganótt
Kunnuglegur staður
Sort
Tár
Aðeins