Önnur veröld
Blóðið rennur,
sérðu það?
Það lekur,
lítill, rauður lækur
rennur,
breiðist yfir gólfið.
Ég hlæ!

Þér finnst ég kannski
... ja ekki alveg eins og þú.
En í raun og veru
... ja þá er ég eins og þú.
Ég hef bara
... ja aðeins öðruvísi hugmyndir um lífið.

Já það er rétt.
Ekki líta mig hornauga.
Ég er eins og þú
...ja svona næstum því.
 
Ásta Hermannsdóttir
1987 - ...


Ljóð eftir Ástu

Gamla dugga
Ásýnd
Önnur veröld
Kyrrð
Undir yfirborðinu