En ef?
En ef þú kæmir,
haltrandi með þennan trefil um hálsinn,
öskrandi á hjálp
og gripir í örvæntingu um hálsinn á mér.

drægir mig niður með þér og skildir mig eftir götunni.

En ef þú kæmir,
kaldur og blautur eins og skógarþröstur,
gaggandi í mig
og bæðir mig um að gefa þér korn.

ætir það upp til agna og skildir mig eftir hungraða.

En ef þú kæmir ekki,
ósýnilegur og falinn í hræðilegri þögninni,
ásæktir huga minn, og
á endanum gæti ég ekki andað af örvæntingu.

Að lokum værir raunveruleg þjáning mín þrátt fyrir allt.

Hvort sem þú kæmir
eða kæmir ekki neitt,
þá er leikurinn fyrirfram tapaður.
Eða unninn.

Það fer eftir því hvort þú kæmir...
 
Hulda Rós
1985 - ...
31. 10. 05


Ljóð eftir Huldu Rós

En ef?
Ljósgrænn losti
Margfætlur með ljósum
Hvað ég fann til
Regnbogi
Gyllt hjartalag
Veturinn er fyrir mig
Feilspor
Djass af himnum
Fagra veröld
Trú
Þann dag
Sólin sekkur í nótt
Auðlind þín
Svanurinn
Ljótljóð
Eitt kertaljós
Svipmynd þín
Þekkiru mig?
Tunglið
Falið bros
Engin orð
Skugginn
Ekkert er eilíft
Helförin
Tilbúin ímynd
Fantasía
Lygnir dagar
Rótleysi
Veruleiki
Tíminn
Tvær dúfur
Mynd af skóm
Stríð
Tímalaust logn
Augun þín sjá
Ég ætla að vaka í nótt
Andvarp
Fiðrildi
RótBreytingar
Himininn varð sár
Brosandi heimur
Útilokað
Örvænting
Ófullkomleiki
Fullkomið tré
Algjör steypa
Grá stétt
Hryðjuverkadansleikur
Eva í paradís
Erkióvinur minn
Sagan af laginu
Þykkir viðardrumbar
Nákvæmlega ég
Útsaumuð rós
Andartak í spegli