Erfitt að vera sterk
Það er erfitt að vera sterk
Þegar mér finnst eins og heimurinn sé að hrynja
Og glerbrotum rigni yfir mig, skerandi mig alla...
Þegar mér finnst eins og það sé búið að setja hjartað á mér í þvingu og herða eins mikið og hægt er... rólega að murka úr mér lífið...
Þegar mér líður eins og eldfjalli tilbúnu til að springa á hverri stundu...
Fljótlega mun hraun vella allt í kringum mig...
Og folk mun vita sannleikann...

Það er erfitt að vera sterk...
 
Særún
1987 - ...


Ljóð eftir Særúnu

hugsanir
Brostið hjarta
Ef þú bara vissir
Erfitt að vera sterk