Rótleysi
Sem fræ fæðist
og sólin nærir þig menning!
Nútímamaðurinn heilsar
þegar siðmenning slítur sig úr jörð.
Lífræna tengingin er rofin
og vélrænt skipulag mengar regnið.
Úrkynjun sem kveður upprunann um sinn.
Þeir þættir sem virkuðu
virka ekki lengur
og sálin er týnd í stórborg
með götuljósum og lestarstöðvum...
Afturhvarf til flökkulífs, flandrara
í hringiðu mannlífs.
Öllu er hægt að skipta út
í verksmiðju þar sem náttúran færir sig
fyrir gráum skýjum.
Fórnar blóði og sál
fyrir þig menning!
Til heimsborgar dagsins í dag.
Síðasta blómstrið visnar
og ræturnar slitna, deyr.
Rís svo alltaf upp að nýju.
og sólin nærir þig menning!
Nútímamaðurinn heilsar
þegar siðmenning slítur sig úr jörð.
Lífræna tengingin er rofin
og vélrænt skipulag mengar regnið.
Úrkynjun sem kveður upprunann um sinn.
Þeir þættir sem virkuðu
virka ekki lengur
og sálin er týnd í stórborg
með götuljósum og lestarstöðvum...
Afturhvarf til flökkulífs, flandrara
í hringiðu mannlífs.
Öllu er hægt að skipta út
í verksmiðju þar sem náttúran færir sig
fyrir gráum skýjum.
Fórnar blóði og sál
fyrir þig menning!
Til heimsborgar dagsins í dag.
Síðasta blómstrið visnar
og ræturnar slitna, deyr.
Rís svo alltaf upp að nýju.
10.nóvember2005