Eva í paradís
Ég bít í rautt epli
og finn enga sektarkennd
né blygðunarkennd.
Heldur finn ég hvernig
kroppurinn blómstrar.
Því þú ert það sem þú borðar.
Ef Eva hefði bara vitað þetta
hefði hún ekki þurft að þjást
svona, fyrir eitt epli.
Og þó.
Við hefðum ekki verið söm
frjáls, náttúruleg og óháð.
Með atvinnulausa fatahönnuði.
og finn enga sektarkennd
né blygðunarkennd.
Heldur finn ég hvernig
kroppurinn blómstrar.
Því þú ert það sem þú borðar.
Ef Eva hefði bara vitað þetta
hefði hún ekki þurft að þjást
svona, fyrir eitt epli.
Og þó.
Við hefðum ekki verið söm
frjáls, náttúruleg og óháð.
Með atvinnulausa fatahönnuði.