frilla mín
ég sá lausnina
horfði í ginið á henni
fann lyktina af frelsinu
sem hún bauð mér
hvert sinn sem ég
handlék hníf

frelsið speglaðist
í egginni svo lokkandi
svo auðvelt svo blítt
og lausnin strauk mér um vangann
hvíslaði í eyra mitt
lofaði mér friði

stundum hallaði ég
höfðinu upp að henni
hvíldi svitastorkið enni mitt
á sætum vörum hennar
bara svolitla stund
með lokuð augun

hrinti henni svo frá mér
sagðist ætla að berjast
aðeins lengur enn um stund
bað hana að bíða á góðum stað
ef ég þyrfti á henni að halda
hún bíður enn

þó hef ég yfirhöndina
í bardaganum núna  
Ingibjörg Rósa
1976 - ...


Ljóð eftir Ingibjörgu Rósu

fyrsta ljóðið
kærkomin deyfing
afmælisskál
Borðbæn
ladída
rússneska lagið
berrössuð
allt búið
djöfladansinn
ég hlæ
vonlaus
lítil frænka
leyndarmál
kláði
leifar
svart
klessa
mér er kalt
trúður
partí
rask
eftirá
hefnd konu
feðralag
útstáelsi
frilla mín
móðgun
blóðbað
einspil
draumaskúrkurinn
jólalyktin
samviskan
svo ein
klækir
íslenskt sumar
það er komið sumar
nútímaást
helvítis beljan
dauðaslys
óveðursnótt
leikurinn
hún sem grét
stundaglas
fyrir utan
útskrifuð
speglun
kreppan mín
frostatíð
morð sjálfs
vorfiðringur
fölsk ást
við matarborðið
fallið