Önnur minning
Hjartað hamast
og hugurinn fíflast,
kitlandi hugmyndir
um samveru tveggja
sem gætu orðið
en aldrei verða.
Titrandi hönd
og flöktandi spurning,
sem aldrei hlýtur svar
og minningar fæðast
um það
sem aldrei verður.
Vonin vaknar
er draumurinn svífur að,
en hún brestur
er hann flýgur hjá
og það sem gat
varð ekki.
Vert er að minnast
þess sem gat
en ekki varð.
og hugurinn fíflast,
kitlandi hugmyndir
um samveru tveggja
sem gætu orðið
en aldrei verða.
Titrandi hönd
og flöktandi spurning,
sem aldrei hlýtur svar
og minningar fæðast
um það
sem aldrei verður.
Vonin vaknar
er draumurinn svífur að,
en hún brestur
er hann flýgur hjá
og það sem gat
varð ekki.
Vert er að minnast
þess sem gat
en ekki varð.