raun
fjölmargar tilraunir hafi verið gerðar
tilraunir til tilrauna í það minnsta
en engar framfarir eru mælanlegar

líkt og hornafall geta þær sveiflast
upp fyrir og niður fyrir línuna
en meðaltalið er alltaf núll

margföldun með heilli eða hálfri tölu
jafnvel diffrun eða heildun
breytir ekki neinu

það er því aðeins eitt ráð
fara verður að kjarnanum
og breyta formúlunni

en þrátt fyrir einfaldleika
er dulkóði minn flókinn
erfðaefni mínu fæst ekki breytt  
fígúra
1983 - ...


Ljóð eftir fígúru

vítahringur
eftirtekt
eyða
raun
þoka
satan er harðstjóri
stjórinn
staðreynd
þurrkur
hversdagsrútína