Erna
Viltu vera memm?
Koma út að leika?

Róla svo hátt að við sjáum upp til Guðs
og Maríu Mey vera að dusta sængina sína.
Viltu koma upp á Strokkhól?
Og hlusta á álfana strokka smjör.
Viltu koma í Barbie?
Og þú gerir Ugla-sat-á-kvisti
og velur þannig dúkkurnar sem við leikum með.

Viltu svo koma upp í Stóra Hús til ömmu?
Og við fáum okkur mjólk með neskvikk
og Prins Lu súkkulaðikex.
Og svo hlæjum við svo mikið
að mjólkin frussast út úr nefinu á okkur.

Viltu svo koma og tína sóleyjar og fífla
og gefa Siggu frænku?
Og hún gefur okkur sleikjó að launum.
Viltu svo koma að hjóla?
Og hjóla alveg ógeðslega hratt.
Hraðar en fuglarnir og Týra.

Viltu verða aftur sex ára?
Viltu það?
Viltu vera memm?  
Josiha
1982 - ...


Ljóð eftir Josiha

Söknuður
Erna
Nútímaljóð
9. október
Losti