6. ágúst, hjá Tjörninni
Fljóta og glampa
hundruð kertaljósa
á vatnsspegli.
Þögul biðja
hundruð hjartaljósa
í kvöldhúmi.
Friður umfaðmar
mannfjöldann
huggar og róar.
Hugur minn er staddur
á heilagri stund
hjá Galíleuvatni.
hundruð kertaljósa
á vatnsspegli.
Þögul biðja
hundruð hjartaljósa
í kvöldhúmi.
Friður umfaðmar
mannfjöldann
huggar og róar.
Hugur minn er staddur
á heilagri stund
hjá Galíleuvatni.