eymd
Hugur minn reikar hringinn í kringum hjarta mitt
nemur ekki staðar nema rétt til að gefa því kjaftshögg
blóðið hoppar af stað og nístir sál mína
smátt og smátt losa ég um eymdina
með því að læðast skömmustulega út um augnkrókana
síga hljóðlega niður vangann og gufa upp  
Lóa
1985 - ...


Ljóð eftir Lóu

Höfnun
eymd
Jólanótt
óvissa