Háð þér
Það er eins og ég geti ekki andað,
geti ekki séð, geti ekki hugsað.
Það er líkt og þú sért lyf, ég er föst.
Ég er föst undir valdi þínu.
Ég kemst ekki undan,
þú heldur of fast.
Ég er háð takinu sem þú heldur mér.
Ég er háð þér.
 
Margrét Rún Snorradóttir
1992 - ...
Ég var búin að setja þetta hérna áður en þegar ég þurfti að gera nýjan aðgang ákvað ég samt að hafa þetta hérna, bara svo að það sé alveg á hreinu að ég gerði þetta, ég er ekki að stela því.


Ljóð eftir Margréti Rún Snorradóttur

Hvernig
Farinn
Háð þér
Litlar sálir
Rigning