blekking
Dansa af stað í undraheimi

Djöfullinn tekur mér á móti

Stjarnan í tætlum, eigi gleymi

Hatur og illkvittni enda á spjóti



Barðist hér inni bugaður særður

Bikini dansa í augum á mér

Lúinn lamaður, í goluni bærður

Latur lyggjandi í heilanum hér



Hantekinn stundum aldrei með valdi

Dirfist þú tala hnepptu þér frá

Saklausi maðurinn sloppinn úr haldi

Kindurnar halda aftur túnið á



Stjarnan svífur um loftið trúið

Dagur mun aftur birta okkur sýn

Hvorki svíkja stela og aldrei ljúgið

Þá axir og hnífar laggðir við brín



Biturð og sorg verða frá að hverfa

Bítið ei,sláið ei hugsið ei ljótt

Feld verður hver önnur karlremba,herfa

Síðasta illgresið af guði sótt



Trúið á allt hið góða í okkur

Geymið að efast komiði með

Nýsloppinn fuglinn frjáls verður kokkur

Sólin mun bræða hið síðasta freð



Guð hann mun segja hættið að plata

Platan er úrellt, talvan er nýtt

Úldnaðar sálir ná fullum bata

Hans tungumál skilið aftur er þýtt



Glugginn mun fyllast,línurnar laggðar

Hatur er minning,gleymt alla tíð

Illskan er búinn hrollsögur sagðar

Endalaus ánægja trylla mun lýð



Komið og búið í okkar heimi

Ávallt er sumar hiti ef vill

Fagnandi takið nú guðana teimi

Argandi,öskrandi víman mín tryll



Dansandi alltaf,aldrei að stoppa

Það kostar ekkert að dilla sér

Guðir og púkar ánægðir hoppa

Aldrei að eilífu gleðin fer



Kettir og hundar húsdýrum stjórna

Hænurnar dauðar verpa ei meir

Lítið verð, bara vondu að fórna

Summan er einföld af tveir+tveir



Á ég að trúa, þið viljið ei þetta

Er heilinn farinn snildin burt

Hatrið svo mikið illskan það rétta

Hlustið ei,horfið!!viljið þið durt  
andres
1975 - ...


Ljóð eftir andres

viska/heimska
endir ástar
örlög
blekking
unginn okkar