Strákur.
Strákurinn.

Jæja þá vinurinn væni
veistu hvenær við getum vænst þín.
Við höfum átt von á þér lengi
vor móttaka verður jú fín.

Þín systkyn þau vænta þess bæði
Þorsteinn og Tanja Björk.
Að lífið með þér verði æði
og framtíðin falleg og björt.

Og parið þau Adam og Heiða
þig vernda munu bæði og þrá.
Um lífsins rangala leiða
og vernda hættum frá.

Og eins mun ég afi þinn Steini
halda í hendina þína.
Þig leiða um líf eftir getu
og fræða svo mikið sem má.

Svo kallinn minn farðu að koma
við bíðum þess öll þig að sjá.
Og ég bið þess til Guðs og ég vona
að hann verndi þig ógæfu frá.

Þorsteinn Pálmar Einarsson
17.10.2008.
 
Þorsteinn Pálmar Einarsson
1963 - ...


Ljóð eftir Þorstein Pálmar Einarsson

auður
Síðasta orðið.
Til HAMINGJU !
Blast off !
Strákur.