Vorrigning
Í rigningu á kyrrum vordegi
springa blómhnappar út
Á blautu ljósgrænu torfþaki
fæðast þeir saman í hvítt og fjólublátt
Nýfædd börn, blómhnappar,
teygja sig hátt upp í vorloftið
Þótt fæðingargrátur heyrist ekki,
sjást bros og kátína í hvítu og fjólubláu
Lítil þögul líf á jörðinni stóru
rifja upp von í hjörtum vorum
Vorrigning fellur úr gráum himni,
við hvítt og fjólublátt leika sér sálir vorar
springa blómhnappar út
Á blautu ljósgrænu torfþaki
fæðast þeir saman í hvítt og fjólublátt
Nýfædd börn, blómhnappar,
teygja sig hátt upp í vorloftið
Þótt fæðingargrátur heyrist ekki,
sjást bros og kátína í hvítu og fjólubláu
Lítil þögul líf á jörðinni stóru
rifja upp von í hjörtum vorum
Vorrigning fellur úr gráum himni,
við hvítt og fjólublátt leika sér sálir vorar