Vorblær
Mér berst óvænt að vitum
blíð angan og ljúf
sem smýgur um hörund mitt
Brum á nakinni grein
sem skotið hefur upp kolli
þenur út nýjan dag í hjarta mér
Þótt tíminn fjötri allt
og slökkvi vonarneista
kviknar hann á ný með vorblænum
blíð angan og ljúf
sem smýgur um hörund mitt
Brum á nakinni grein
sem skotið hefur upp kolli
þenur út nýjan dag í hjarta mér
Þótt tíminn fjötri allt
og slökkvi vonarneista
kviknar hann á ný með vorblænum