Byssan verndar mig
Til hvers vaknaði ég í dag?
anda að mér lofti sem umlykur blóði ungra drengja
stundum vil ég sofa til að deyja
en ég lifna alltaf aftur við
því í mínum draumum er allt snúið á hlið
Til hvers tek ég upp þessa byssu?
bara til að skjóta á manninn sem ég taldi sem vin
en eitt sinn skaut ég mann sem rétti mér rós
sem að hlaut að tákna frið
Til hvers var mér ætlað að lifa?
ég spyr mig hvern einasta dag en fæ aldrei neitt svar
svo á meðan ég bíð eftir svari
drep ég alla sem að vona að ég fari