14 hnútar
orð fá
ein að
leika sér

í hugar
hvolfi
mínu

þau eru þar
að teygja
úr sér

eða hanga
á langri
línu

þerruð upp
eða strokuð
út

með hugar
strok
leðri

en annars
færi allt
í hnút

og yrði að
hugsanlegu
óveðri

en óveðrum
slota að
lokum


en gerum
gerum ekki
neitt

og ef við
bara
dokum

verður þeim
á endanum
eytt


 
Jónas í skuld
1959 - ...


Ljóð eftir Jónas í skuld

14 hnútar
ffh
gullfiskur (carassius auratus)
plástur