Ég er vampíra

ég er vampíra
ég er vampíra
ég borða ekki menn
ég drekk blóðið
og líkin ég brenn

ég er vampíra
ég þoli ekki ljósið
ég lifi án ljóss
og sef við fjósið

ég er vampíra
ég eignast ekki vini
ég á enga að
og á ég samt tvo syni

ég er vampíra
ég dey ekki
ég lifi alltaf
nei! þarna ég þig blekki

ég er bara manneskja.
 
Alda Magnúsdóttir
1992 - ...
Eitt af mínum sýruljóðum.


Ljóð eftir Öldu Magnúsdóttur

Alexandra Líf
Ég er vampíra
Lífsins braut.