Skilaboðin
Ég fékk skilaboð
þau sögðu mér að koma.
Ég horfði á þau
starði
opinmynntur sauður
með lokaðan ákvörðunarhlera.
Ætti ég?
Spennan í maganum jókst
teygði sig dýpra niður
og rétt kitlaði bakhluta pungsins.
Ætti ég ekki?
Maginn fór í hnút
kvíðasamur titringur læddist í fingurna
tennurnar bitu í vörina.
Gat ekki hugsað mér að afþakka
svo að ég kom.
þau sögðu mér að koma.
Ég horfði á þau
starði
opinmynntur sauður
með lokaðan ákvörðunarhlera.
Ætti ég?
Spennan í maganum jókst
teygði sig dýpra niður
og rétt kitlaði bakhluta pungsins.
Ætti ég ekki?
Maginn fór í hnút
kvíðasamur titringur læddist í fingurna
tennurnar bitu í vörina.
Gat ekki hugsað mér að afþakka
svo að ég kom.