

Tendruð tár
brenna á vörum mínum
á meðan svefndrukkin sálin
situr í felustað sínum...
Gagnlaus grátur
vill frelsa sálina
sökkva sorginni
sem safnast hefur...
en...
Hér eru bönd til að binda
hlekki um hjartað
...ef í spottann er togað
þrengist að og
verður hnúturinn
óleysanlegur...
svartur skuggi
situr rólega og bíður
meðan huglaust lífið
brosir við mér.
brenna á vörum mínum
á meðan svefndrukkin sálin
situr í felustað sínum...
Gagnlaus grátur
vill frelsa sálina
sökkva sorginni
sem safnast hefur...
en...
Hér eru bönd til að binda
hlekki um hjartað
...ef í spottann er togað
þrengist að og
verður hnúturinn
óleysanlegur...
svartur skuggi
situr rólega og bíður
meðan huglaust lífið
brosir við mér.