Hver er
Hver er það sem skynjar heiminn,
hver er það sem heyrir,
hver er það sem finnur til,
og hver er svona feiminn.

Hver er bak við augun þín,
hver er það sem horfir,
hverjum birtist þessi sýn,
er það eins með augun mín.

Þú ert ég og ég er þú,
en hverjir eru hinir,
á sama stað á sömu stund,
á eina staðnum hér og nú.
 
Davíð
1980 - ...


Ljóð eftir Davíð

Ekkert
Hver er
Gasprandi
Gamlárskvöld
töfrabragð
Himnaríki
Listin að lifa
Sambönd