Dagdraumar
Ég finn fyrir nálægð þinni
hvert sem ég geng, brosi ég, því þú ert mér í minni
En einnig finn ég fyrir ógleði og sorg
því ég veit við munum aldrei deila húsi í hjartaborg

Þú ert hér, ég er þar
hugsandi um stundir liðnar
En hvernig er það, ég verð að fá svar
áður en hjarta mitt gliðnar.  
Jón Gunnar Vopnfjörð
1995 - ...


Ljóð eftir Jón Gunnar Vopnfjörð

Ást í tónlist
Dagdraumar
Verkfall