Framadraumar Leppalúða
Af gamla Leppalúða
nú leggur jólailm.
Íklæddur skondnum skrúða
starfa vill, hjá Saga-film.

Við Grýlu skildi grama
nú geim skal prufukeyrt
í leit að frægð og frama
á forsíðu „Séð og heyrt“.

Nær Leppalúði frama
í framadrauma drama
ef fær hann pláss í keppni Rásar tvö?

Leppalúði sendir
látlaust Selfy snapp.
Hjá Loga gaurinn lendir
með Leppalúðarapp.

Hann hugsar sér gott til glóðar
um sín glæstu þáttaskil
Hann höfðar vel til þjóðar
horfir Bessastaða til.

Nær Leppalúði frama
í framadrauma drama
ef fær hann pláss í keppni Rásar tvö?
það nægir kannski að þekkja Sigga Hlö.

 
Elín Kona Eddudóttir
1965 - ...


Ljóð eftir Elínu Konu Eddudóttur

Grýludraumar
Framadraumar Leppalúða
Kosningarnar 2013
Glugginn minn og glugginn þinn
Ölfusá
Gengið um götur Guðmundar góða
Kona í landi sona