Fránhildur fyrrverandi
Hún Fránhildur fyrrverandi,
hefur það fyrir sið.
Að hefna sín á honum,
hvar sem hún kemur því við.

Því Fránhildur fyrrverandi,
er forsmáð og efalaust veik.
Svo hugsjúk og full af hatri
til hans, sem eitt sinn sveik.

Þetta naflagras, hans núverandi,
sú nánös vill sættir og frið.
Með háttvísu handabandi,
henni kemur það bara ekki við.

Þó Fránhildur fyrrverandi,
sé frek er hún öguð sál.
Því hefndin í hugann meitluð
er alltaf forgangsmál.
----
Orðfár og kvalinn er X
endalaust leiðist það pex,

Er hægt að lifa í sátt?

Nei kerlingin er kex,
kolbrjálað hex.

og meðlagsskuldin hóf sig hátt

já himinhátt og vex.  
Gleðja
1957 - ...


Ljóð eftir Gleðju

Etýða (einleiksverk á hörpu)
Leyndarmál
Orðin hörð
Nafnið þitt
Í mánaskini
Ljósblátt vor
Ljós sönnun
Skilaboð að handan
Lilja
Kvittur
Vegvísir
Sólarsjarmur
Heit þrá
Þráhyggja
Söknuður
Lífdagar
Hrafnaþing
Krummi og ég
óskipulegt tilboð
Morgunengill
Stjórnlaus kátína
Söngur smáfugls
Taktur afa og ömmu
Nýr dagur
Óraunveruleiki raunveruleikans eða öfugt
Fránhildur fyrrverandi
Tímans tal
Laus-ung