Rigning í Reykjavík
Einsog mara
liggur á borginni
blautri
blýgrár þrúgandi
himinn
hvers
mega sín þá
marglit þökin
æpandi á sól
á ljós
á örlitla
miskunn?  
Ingibjörg Haraldsdóttir
1942 - ...


Ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur

Kona
Kona
Haust
Rigning í Reykjavík
Jólaskemmtun
Húm
Skáldkonan sem hvarf
Dúfan mín