Stefnumót
Horfði útum gluggann í leit að spegilmynd af þér
sá norðurljósin og þokuna
fjúka fram og tilbaka með vindinum
og mér var skít sama.
Allt sem ég sagði fyllti uppí ófylltu eyðurnar
og þú blaðraðir og blaðraðir,
bað til guðs að þú myndir bara þegja.
Á döpru sunnudagskvöldi
keyrandi reykjanesbrautina
í leit að ást
sá norðurljósin og þokuna
fjúka fram og tilbaka með vindinum
og mér var skít sama.
Allt sem ég sagði fyllti uppí ófylltu eyðurnar
og þú blaðraðir og blaðraðir,
bað til guðs að þú myndir bara þegja.
Á döpru sunnudagskvöldi
keyrandi reykjanesbrautina
í leit að ást
Janúar 2003