Elsku Amma...!!
Kallinn er svipti þig sjálfræði
sekur í gröfinni liggur
ofsjónir, ofheyrnir og gríðarleg bræði
ofsækja þig, er hann hryggur?

Hvaða viðrini hugsar sér
harm sínu eigin barni
elsku amma segðu mér
er skrítið að hjarta þitt harðni?

Afi hefur stutt þig í gegnum súrt og sætt
verið þín stoð og stytta
það er víst að þetta fær ekkert bætt
þessi kall var bara fyllibytta.

Hvernig hefði ævi þín atvikast
hefði henn látið þig vera,
við skulum slá því á fast
sektarkenndina hefðurðu ekki þurft að bera..!!

-Amma ég skil svo vel afhverju þú ert eins og þú ert. Vonandi er heitt í helvíti...!!!  
Sleipnir
1981 - ...


Ljóð eftir Sleipni

Missir..!!
Himnaríki-Helvíti.
Elsku Amma...!!