Þú stóðst svo nærri
Þú stóðst svo nærri
svo órafjærri

ég fann ekki slóðina
gula stíginn
mundi ekki töfraþuluna

er enn handan regnbogans
í eyðilandi

ráfandi, leytandi
að hjarta mínu

eitthvað þeytti mér burt
uppí hæðir fáránleikans
burt, burt frá þér
örygginu

þar sem hjartað fann frið
í faðmi þínum

þú stóðst svo nærri

en samt fann ég
sem afhjúpað hafði lygina

ekki leiðina heim

til þín  
Íris Guðmundsdóttir
1968 - ...


Ljóð eftir Írisi

Meðal fagurkeranna
Lokaðu dyrunum
Segðu ekki
Þú stóðst svo nærri
Sástu við mér?
Hverf aftur
Þögnin
Suðurlandið mitt
Leiktu fyrir mig lagið
Við rökstól viskunnar
Sorgin
Tilvistarkreppa
Ópíum
Hver vegur að heiman...
Trú
Þar sem sorgin hefur búið sér hreiður
Ættarmót
Ómerkt gröf
Vígt hjarta
Ég elskaði sál
Nóttin er mín
Ég syrgi svo margt
Máninn okkar
Hver reisti þennan múr?
Afhjúpun
Missir
Tafl ástarinnar
Legg til mín
Greftrun
Slökk þennan eld
Ráðþrota