Ættarmót
Að finna blóðið ólga í lífæðinni
sem flytur sögu mína
sögu þína, samofna

finna áningarstað
undir fornri eik

vera kysst af sólinni
sem elskaði sérhvern reit

kítluð af mánanum
sem lék við hverja grein

lauguð í dögginni
tárum laufblaðanna

hvísla að moldinni
sem þekkir rótina

ég man hver ég er  
Íris Guðmundsdóttir
1968 - ...


Ljóð eftir Írisi

Meðal fagurkeranna
Lokaðu dyrunum
Segðu ekki
Þú stóðst svo nærri
Sástu við mér?
Hverf aftur
Þögnin
Suðurlandið mitt
Leiktu fyrir mig lagið
Við rökstól viskunnar
Sorgin
Tilvistarkreppa
Ópíum
Hver vegur að heiman...
Trú
Þar sem sorgin hefur búið sér hreiður
Ættarmót
Ómerkt gröf
Vígt hjarta
Ég elskaði sál
Nóttin er mín
Ég syrgi svo margt
Máninn okkar
Hver reisti þennan múr?
Afhjúpun
Missir
Tafl ástarinnar
Legg til mín
Greftrun
Slökk þennan eld
Ráðþrota