Hver reisti þennan múr?
Hver reisti þennan múr
þennan ósýnilega hljóðmúr?

Við stöndum hlið við hlið
þú heyrir ekki hjartsláttinn
hjartað kalla

hver reisti þennan vegg
þennan kalda, brothætta vegg?

Við horfum í gegnum hann
þú sérð mig ekki
finnur ekki hitann
frá líkama mínum

skimum eftir glerinu
svo brothætt

finnum kulda þess
hörfum

göngum varlega framhjá

hver reisti þennan múr, þennan vegg?
hver gaf leyfi, hver fyrirskipaði það?

Ég er viss um að það var ekki ég  
Íris Guðmundsdóttir
1968 - ...


Ljóð eftir Írisi

Meðal fagurkeranna
Lokaðu dyrunum
Segðu ekki
Þú stóðst svo nærri
Sástu við mér?
Hverf aftur
Þögnin
Suðurlandið mitt
Leiktu fyrir mig lagið
Við rökstól viskunnar
Sorgin
Tilvistarkreppa
Ópíum
Hver vegur að heiman...
Trú
Þar sem sorgin hefur búið sér hreiður
Ættarmót
Ómerkt gröf
Vígt hjarta
Ég elskaði sál
Nóttin er mín
Ég syrgi svo margt
Máninn okkar
Hver reisti þennan múr?
Afhjúpun
Missir
Tafl ástarinnar
Legg til mín
Greftrun
Slökk þennan eld
Ráðþrota