\"Skartgripur\"
...sá fegursta hring sem ég hef nokkurn tíma séð
fyrir einu og hálfu ári síðan...
...alsettur rúbínum, smarögðum og safír
í silkimjúkri satínöskju í búðarglugga...
...leit á verðmiðann
...of mikið fyrir mig
...fór samt inn
...stal honum...
...hringurinn féll vel að breiðum baugfingri mínum
búðareigandinn hlyti að sakna hans...
...ég bar þetta gull í fjórtán yndislega mánuði
og fann hvernig aðrir störðu í öfund...
...kannski einhver steli honum?
...tók hann aldrei af mér
...passaði upp á hann
...elskaði hann...
...
...gleymdi honum eitt kvöld
þegar alkóhól tók sín völd
leitaði grátandi í angist og kvöl
tilveran missti sín lit og varð föl...
...auglýsti oft og vildi hann finna
leitinni ætlaði aldrei að linna
þar til ég sá hann á annars manns fingri
hringurinn dvaldist þar með öðru glingri...
...
...hringurinn virtist fegurri en nokkurn tíma áður
skein mun bjartar svo birtan skar í augu...
...sá hann um daginn...
...sá gimsteinanna glans
...og ég saknaði hans...
-Daníel-