Heimur á Heljarþröm
Karlmaður konuna lemur - sálina temur - tilfinningar kremur
Ríkisstjórnir drottna harðar - undir fölskum fánum varðar
Guðir á skýjatoppunum standa - börnum granda - eitri anda
...og í heiminum sálirnar liggja dauðar og marðar!!!
Saddam Hussein - Bin Laden - Fidel Castro - ógnarstjórn!!!
Adolf Hitler - Júdas Lærisveinn - Satan og ég...
Atli Húnakonungur - Nero Rómarkeisari - mannafórn!!!
Morðingi - nauðgari - ræningi og trúlaus... ég...
Við hindrum ei blóðbað - sökkvum í drullusvað - gungur
Ég er syndugur - blóðugur - hef gert svo margt - ungur
Ég stöðva ei ofbeldi - berst ei gegn blóðveldi - sál mína seldi
...dauður að innan - blauður að utan - rauður af blóði...
Ég er engu skárri en allir þeir - er heimurinn deyr - guð dæmir
Ég leit til hliðar - er barnið dó - heimurinn riðar - ég hló
Því engin var hér sorg - engin sársaukaorg - hljóðlítil friðarborg
...en í leynunum - annars staðar - hvíla enn mennirnir slæmir...
Þið getið gert svo mikið - en hikið - og sitjið kyrr fyrir vikið
Ekkert er gefið - þið slefið - og steikurnar étið - svo feit
Barnið kafnar - í fjöldagröf hafnar - meðan magi ykkar dafnar
Hvenær erum við næst? Getum við sæst? Enginn veit...
Í næsta húsi ofbeldi ríkir!!!
Og dynkir engu líkir!!!
En við sitjum kyr og heyrum ei hljóðið
Líkið er burtu borið - og við sjáum ei blóðið...
Augun lokuð... eyru lokuð... afskiptaleysi
Lifum södd... deyjum gömul... með farða á feisi
Ég blandast í hópinn - geri ekkert einn
Og enginn hjálpar til - ekki neinn...
...og ég sé brátt að aurar mínir eru ekki til neins...
...okkar hjálp er lítil sem engin - veikburða - engin furða...
...því allir hér í heimi hugsa eins:
...\"ÉG skipti öllu máli\"

Samið sem rapptexti (við þungarokksgítarundirleik auðvitað) fyrir löööngu síðan!