Segull
þú tælir allt til þín - sem segull að járninu köldu
þegar þú lyftir brúnum koma gimsteinar í ljós
dýrmætu smaragðarnir heilla gráðuga mennina
sem þyrstir í ást og vilja snerta þig...
er þú opnar upp varirnar - hljómar sannleikurinn betur
köld veröldin öðlast hlýju í orðum þínum
angan hörunds þíns laðar fögur fiðrildin að þér
og fiðrildin í brjósti mínu - lifna við og fljúga...
er þú lokar augum - slakar á taugum og sefur
þá tekur guð sína fegurð - þér gefur
kyrrðin í kringum ásjónu þína bjarta
tælir mig - líkt og segull að stálhjarta...
hjarta mitt ryðgar - ef þú lásinn ei opnar
og ástin mín til allra - deyr og dofnar
fiðrildi mín fljúga aðeins fyrir þig
þú ein hefur lykilinn - svo opnaðu mig
hleyptu þeim út - þá þau stefna til þín
svo þau umkringja þig - og þú verður mín...
...hjarta mitt málmur - sem hvílir í mér...
...segull þinn sterkur - það dregst að þér...

Gamalt og gott úr ljóðasafni mínu... :)