Anarkismi
hversu lengi skal ég bíða þess að veröld verði sönn?
er frelsið enn svo óþroskað - barn með enga tönn?
lýðveldi er stjórnað hart af hræsnurum og svikum
þjóð er voodoodúkka - nálapúði - úttroðin af stikum...
ógnarstjórnir ríkja enn í heimi sem er \"frjáls\"
en það er engin leið að sjá - hvern skal skera á háls
sökin liggur ekki í flokkum - né spilltum einvaldssinnum
hún liggur hér í mér og þér - undir fölskum skinnum...
við lifum hér í heimi döprum - leynumst undir meiki
ég veit þú lýgur sjálfur - hef spilað þessa leiki
brögð í tafli og ekkert er satt - hver erum við í raun?
með bros á feisi - útávið - og grátum svo á laun...
verum sönn og opnumst upp - líkt og blóm á engi
frelsið sem við þráum svo - hefur falið sig svo lengi
með réttu hugarfari - ástúð - við getum skilið hvort annað
og lifum svo í einni heild - þar sem ekkert gott er bannað...

Taldi mig vera anarkista einu sinni, núna er ég Vinstri-Grænn... hver veit hvað verður seinna?