Vin
Eins og vin í eyðimörk
bíð ég þess
að einhver nemi staðar
og svali þorsta sínum.

Eins og vin í eyðimörk
verð ég eftir
þegar þeir kveðja.

Eins og vin í eyðimörk
er ég
ein í auðninni.
 
Sesselja Guðmunds.
1966 - ...


Ljóð eftir Sesselju Guðmunds.

kristallar
Birta
Hálf hugsun
Sjálfsmynd
Vin