Örin eftir örvarnar
var rétt búinn að jafna mig
á tveimur djúpum skotsárum
er ég sá hann koma
askvaðandi yfir sjóndeildarhringinn...
andlit hans
makað í stríðsmálningu
augun
glottandi af glettni
góndu á mig...
þekkti hann
svipinn
og vopnið
sem hann bar á mjóu bakinu...
ég hljóp af stað hræddur
hugsandi um síðustu skot
og örin sem fylgdu þeim...
hann hljóp af stað í hefndarhug
hugsandi um örvarnar
sem töpuðust í líkama mínum...
...
gráti nær sem gunga
gaf ég allt sem ég átti
til að flýja þennan mann...
skríðandi líkt og snákur
smeygði hann sér þó
beint í veg fyrir mig...
augu okkar mættust
eitt örlítið augnablik...
...
hann mundaði bogann
miðaði betur
sleppti strengnum
og hitti beint í hjartastað...
hvort örin dreyfði ástareitri?
hvort örin lífgi hjartað við?
hvort ég hitti hana einu réttu?
á öllum svörum verður bið...
...
en Amor hefur aftur hitt
í viðkvæmt hjarta mitt
ekki lengur úr hörðu grjóti
og nú getur það tekið á móti...
á tveimur djúpum skotsárum
er ég sá hann koma
askvaðandi yfir sjóndeildarhringinn...
andlit hans
makað í stríðsmálningu
augun
glottandi af glettni
góndu á mig...
þekkti hann
svipinn
og vopnið
sem hann bar á mjóu bakinu...
ég hljóp af stað hræddur
hugsandi um síðustu skot
og örin sem fylgdu þeim...
hann hljóp af stað í hefndarhug
hugsandi um örvarnar
sem töpuðust í líkama mínum...
...
gráti nær sem gunga
gaf ég allt sem ég átti
til að flýja þennan mann...
skríðandi líkt og snákur
smeygði hann sér þó
beint í veg fyrir mig...
augu okkar mættust
eitt örlítið augnablik...
...
hann mundaði bogann
miðaði betur
sleppti strengnum
og hitti beint í hjartastað...
hvort örin dreyfði ástareitri?
hvort örin lífgi hjartað við?
hvort ég hitti hana einu réttu?
á öllum svörum verður bið...
...
en Amor hefur aftur hitt
í viðkvæmt hjarta mitt
ekki lengur úr hörðu grjóti
og nú getur það tekið á móti...