Vonin úti / Vonin inni
-Hluti I – Vonin úti-
kuldinn er kominn til að vera hérna lengi
kvöldið er fallið á lífsins gráa engi
rökkrið í rjóðrinu dökknar og sofnar
rauða sólin felur sig og smám saman dofnar...
þrösturinn þegir og vindurinn lægist
þruskrið í fjarska efast og hægist
hugsi á himninum máninn nú kyrr
horfið er ljósið er lýsti honum fyrr...
...
myrkur á ískaldri mánafold
minni er aflvana sálin mín núna
sem strúturinn sting ég hausnum í mold
styrkurinn fór við síðustu brúna...
hann fór er ég brenndi síðustu brúna
brugðinn er brandur í sálinni minni
fegurðin fór og ég missti alla trúna
falur er ég sorg og kaldri eilífðinni...
-Hluti II – Vonin inni-
þó þrösturinn þagni og myrkrið á fellur
þiðnar allur kulinn um síðir
þó komi á sálina svakalegur skellur
bara stórvaxnar hamingjuhríðir...
fögur fæðist gleðin á ný
fjandi sein en kemur þó
lífið lifnar við og sólin er hlý
ljúf og friðsæl kemur ró...
öll él styttir upp um síðir
sorgin er bara hamingjuhríðir...
fegurðin æ aftur fæðist
furðulegt lífið mitt glæðist...
...
fegurðin mun aftur fæðast
fullur af von er ég núna
hljóðlátt mun ég aftur læðast
og reisa síðustu brúna...
kuldinn er kominn til að vera hérna lengi
kvöldið er fallið á lífsins gráa engi
rökkrið í rjóðrinu dökknar og sofnar
rauða sólin felur sig og smám saman dofnar...
þrösturinn þegir og vindurinn lægist
þruskrið í fjarska efast og hægist
hugsi á himninum máninn nú kyrr
horfið er ljósið er lýsti honum fyrr...
...
myrkur á ískaldri mánafold
minni er aflvana sálin mín núna
sem strúturinn sting ég hausnum í mold
styrkurinn fór við síðustu brúna...
hann fór er ég brenndi síðustu brúna
brugðinn er brandur í sálinni minni
fegurðin fór og ég missti alla trúna
falur er ég sorg og kaldri eilífðinni...
-Hluti II – Vonin inni-
þó þrösturinn þagni og myrkrið á fellur
þiðnar allur kulinn um síðir
þó komi á sálina svakalegur skellur
bara stórvaxnar hamingjuhríðir...
fögur fæðist gleðin á ný
fjandi sein en kemur þó
lífið lifnar við og sólin er hlý
ljúf og friðsæl kemur ró...
öll él styttir upp um síðir
sorgin er bara hamingjuhríðir...
fegurðin æ aftur fæðist
furðulegt lífið mitt glæðist...
...
fegurðin mun aftur fæðast
fullur af von er ég núna
hljóðlátt mun ég aftur læðast
og reisa síðustu brúna...